Auðvitað að rukka hann

Auðvitað á að rukka þennann mann, ég er sjálfur Björgunarsveitarmaður og veit hvað svona útköll kosta, bæði í beinhörðum peningum og svo í tíma þeirra sem fara í útköllinn.

Ekki það að menn víli fyrir sér að fara og bjarga fólki enn þegar svona stendur á ættu menn að fá reikning fyrir öllu saman.


mbl.is Björguðu sama manni tvisvar í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Sæll Guðni

Mér finnst athugasemd þín stangast á við það sem björgunarsveitirnar hafa gefið út. Mér finnst við ekki hafa þær upplýsingar úr fréttunum til þess að kveða á um dóm í þessu máli. Minnist þess að hafa komið að aðila sem þurfti að koma til bjargar og viðkomandi var algjörlega ófær um að taka næstu ákvarðanir. Held að það sé mjög óheppilegt að fjalla um svona mál í blöðum eða á blogginu án þess að þekkja mjög vel til. Mér finnst ekki gott þegar björgunarsveitarmenn fara þar fremstir í flokki.

Sigurður Þorsteinsson, 27.10.2008 kl. 09:23

2 identicon

Lögreglan boðar okkur í flest verkefnin og við reynum að leysa þau öll eins vel og við getum. Þessi umræða um borgun er mjög hættuleg vegna þess að fólk sem lendir í ógöngum getur dregið það að sækja sér hjálpar vegna þess að það veit að þetta kostar umstang. Þegar  er síðan kallað í björgunarsveitir getur ástandið verið orðið mun verra og hættulegra fyrir alla.

Sjálfsagt að fólk gæti að sér en ég er sammála förum varlega í það að dæma það getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir okkur öll.

Kveðja

Kristinn Ólafsson

Framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar

Kristinn Ólafsson (IP-tala skráð) 27.10.2008 kl. 11:59

3 Smámynd: Einar Steinsson

Strandið á Vikartindi er skólabókardæmi um hvað gerist þegar menn þurf að borga fyrir björgun, það ævintýri kostaði mannslíf og næstum því heilt varðskip.

Einar Steinsson, 27.10.2008 kl. 17:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðni Hjalti Haraldsson

Höfundur

Guðni Hjalti Haraldsson
Guðni Hjalti Haraldsson

Akurnesingur í ..............

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband